Umhverfismál
Grænt bókhald
Sementsverksmiðjan hefur árlega skilað inn endurskoðuðu grænu bókhaldi, í samræmi við reglugerð nr. 851/2002. Þessar skýrslur eru öllum aðgengilegar á vef Umhverfisstofnunar, slóðin er http://www.ust.is/Mengunarvarnir/Graent_Bokhald/
Þeir sem vilja kynna sér hvernig staðið er að mengunarvörnum, vöktun og útsleppi frá verksmiðjunni eru hvattir til að fara inn á síðu Umhverfisstofnunar.
29.03.2007
Umhverfisstjórnun
Uppbygging umhverfisstjórnunarkerfis í samræmi við kröfur starfsleyfis
Á árunum 1999 og 2000 var unnið að umhverfisgreiningu í Sementsverksmiðjunni. Þá voru unnin þáttablöð fyrir mikilvæga umhverfisþætti og gerð greining á lögum og reglugerðum sem lúta að umhverfisstjórnun fyrirtækisins. Í framhaldi af þessari greiningu var unnið að því að koma á umhverfisstjórnunarkerfi. Þetta var gert til þess að mæta kröfum nýs starfsleyfis sem gefið var út haustið 2001. Vaktaðir eru helstu umhverfisþættir samkvæmt vöktunarskipulagi og fyllstu varkárni gætt við meðferð hráefna og annarra efna við framleiðsluna. Í þessu skyni hefur verið tekin í notkun Vinnuhandbók umhverfisvöktunar, en hún lýsir mælingum, sem gerðar eru, sýnatökum, viðbragðsáætlunum og vinnuferlum. Samin hafa verið stefnuskjöl, vöktunarskipulag og verklagsreglur. Umhverfisstjórnunarkerfið er byggt upp í anda umhverfisstaðalsins ISO 14001 og hefur verið fellt inn í gæðakerfi Sementsverksmiðjunnar.
Hreinsun útstreymis
Dregið er úr loftmengun frá framleiðslunni með öflugum síubúnaði og vöktun á útsleppi. Rykhreinsivirki hafa verið við ofninn allt frá upphafi, en nýtt rykhreinsivirki var sett upp árið 1984 og síðan þá eru eldri rafsíur hafðar tilbúnar svo hægt sé að grípa til þeirra ef stöðva þarf þá nýrri vegna lagfæringa eða endurnýjunar. Árið 1979 var sett upp rykhreinsivirki við gjallkæli. Við sementskvarnir er sömuleiðis rafsíubúnaður, auk pokasía á þeim stöðum sem helst má gera ráð fyrir hættu á rykútsleppi í flutningsbúnaði verksmiðjunnar.
Reglulega er mælt rykmagn í útstreymi eftir rafsíur við ofn, gjallkæli og sementskvarnir. Þessar mælingar eru gerðar á tveggja mánaða fresti. Þær eru gerðar með sérhæfðum mælibúnaði og fara fram í sérstökum mælibúrum og eru því óháðar veðri.
Ryk sem safnast í rafsíu við ofn er fjarlægt með dragkeðju í snigil sem flytur það í vatnsblandara og vatnsblönduðu rykinu er dælt í setþrær sem grafnar eru í skeljasandsgeymslu. Þar sest efnið til en vatnið sígur í gegnum skeljasandinn til sjávar. Þegar þró er full eru hún tæmd með gröfu og efnið flutt með flutningabílum inn í líparitnámur í Hvalfirði þar sem efnið er nýtt til frágangs á námum.
Ryk sem safnast í kælisíu og rafsíur við sementskvarnir er endurnýtt í framleiðslunni.
Gerðar eru þungmálmagreiningar á útsleppi frá verksmiðjunni. Þær eru gerðar af viðurkenndum aðilum utan verksmiðjunnar og fylgst er með því að gildi séu innan þeirra vikmarka sem starfsleyfið setur.
Brennsla olíuleifa og orkuríks úrgangs
Árið 1990 hófust fyrstu tilraunir til eyðingar olíuleifa í ofni verksmiðjunnar og allt frá 1994 hefur olíuleifum verið eytt í gjallbrennsluofninum. Með eyðingu olíuúrgangs vinnur Sementsverksmiðjan að lausn á umhverfisvanda í landinu, nýtir orkuna er myndast við brennsluna og sparar þannig innflutning á kolum.
Tekið hefur verið við olíuleifum frá Olíudreifingu ehf og Skeljungi hf (SÚM), en þeim er safnað saman víðs vegar að um landið í geymi í Örfirisey. Þær eru fluttar til Sementsverksmiðjunnar með skipi og tankbílum Olíudreifingar ehf og Uppdælingar hf. Þá er tekið við orkuríkum úrgangi frá Efnamóttökunni ehf hjá Sorpu og hann fluttur til verksmiðjunnar með tankbílum frá Uppdælingu hf. Hverjum farmi fylgir vottorð um efnainnihald, sem athugað er hverju sinni að falli innan vikmarka í starfsleyfi. Á ári hverju er eytt um 4.500 tonnum af olíuleifum frá SÚM og um 100 tonnum af orkuríkum úrgangi frá Efnamóttökunni. Þá er á hverju ári tekið við nokkrum tugum tonna af orkuríkum úrgangi til eyðingar frá Umhverfisdeild Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Aðeins er tekið við efni frá viðurkenndum aðilum. Leitað er upplýsinga um leyfi aðila sem koma að afhendingu.
Eyðing framköllunarvökva
Síðastliðið vor hófst eyðing framköllunarvökva í Sementsverksmiðjunni. Tekið er á móti vökvanum frá Efnamóttökunni í mjög þunnri vatnslausn og honum eytt í gjallbrennsluofni. Á ári hverju falla til um 200 tonn af vökva, aðallega frá dagblaðsprentsmiðjum og sjúkrahúsum, en gert er ráð fyrir að notkun vökvans fari hratt minnkandi þar sem digitaltæknin ryður hefðbundinni ljósmyndatækni burtu.
Umhverfisstefna Sementsverksmiðjunnar hf
Sementsverksmiðjan hf leggur áherslu á að starfsemi fyrirtækisins valdi sem minnstri röskun á umhverfinu. Fyrirtækið sýnir umhverfismálum áhuga og tekur virkan þátt í lausn umhverfisvandamála í íslensku samfélagi. Þessari stefnu er framfylgt með því að leggja áherslu á eftirfarandi:
- Að vakta alla mikilvæga umhverfisþætti og stýra þeim þannig að neikvæð umhverfisáhrif frá starfseminni séu sem minnst.
- Vinna að stöðugum umbótum á sviði umhverfismála. Gerð er grein fyrir umbótaverkefnum á sviði umhverfismála í framkvæmdaráætlun fyrir hvert ár.
- Leitast við að uppfylla kröfur í starfsleyfi verksmiðjunnar og kröfur í gildandi lögum og reglugerðum um umhverfismál.
- Draga úr mengun af völdum ryks og afgass.
- Minnka notkun óendurnýjanlegra auðlinda eins og kola með því að brenna úrgangsefnum og spilliefnum og taka þannig þátt í lausn umhverfisvandamála á landsvísu.
- Draga úr notkun hættulegra efna og tryggja að meðhöndlun þeirra fari fram við þær aðstæður sem valda ekki skaða á heilsu starfsmanna. Spilliefnum er skilað í viðeigandi förgun.
- Meta umhverfisáhrif við vöruþróun og val á vörum og búnaði til starfseminnar, sem og við nýframkvæmdir. Verktakar og birgjar Sementsverksmiðjunnar eru upplýstir um umhverfisstefnu fyrirtækisins og er viðskiptum beint til þeirra er uppfylla kröfur fyrirtækisins í umhverfismálum.
- Að til séu áætlanir um hvernig brugðist skuli við hugsanlegum slysum og neyðartilvikum og að starfsmenn hafi hlotið viðeigandi þjálfun.
- Uppfræða starfsmenn sína um mikilvægi umhverfismála þannig að þeir sem ein heild vinni að umhverfismarkmiðum fyrirtækisins.
- Að upplýsa hagsmunaaðila um umhverfisáhrif verksmiðjunnar og að fyrirtækið taki virkan þátt í framþróun og umræðu á sviði umhverfismála á Akranesi og á landsvísu.
22.01.2003
GHS




