Gjallframleiðsla
Gjallframleiðslan er svonefnd votframleiðsla. Hráefnunum er blandað saman ásamt vissu magni af vatni og þau síðan fínmöluð í hráefnakvörn. Hráefnakvörnin er af Unidangerð, sem er í tveim hólfum og afköstin við venjulegar aðstæður eru 30 tonn af hráefnum á klukkustund. Hún er með sjálfvirkri tölvustýringu.
Samsetning hráefnanna inn í kvörnina er 85% skeljasandur, 13% líparít og 2% basalt. Hráefnablandan úr kvörninni er leðja með um 32% af vatni. Leðjunni er dælt með þrýstilofti yfir í fjóra leðjugeyma og tekur hver þeirra um 400 m3. Í þessum geymum er leðjan efnagreind áður en henni er dælt í aðalleðjugeymi verksmiðjunnar. Aðalgeymirinn tekur um 4.500 m3 af leðju. Er leðjunni dælt í hann með miðflóttaaflsdælu en úr honum er henni dælt til ofnsins með þrýstilofti.
Ofninn er snúningsofn af Folaxgerð. Þvermál hans er 3 metrar og lengdin er 100 metrar. Hann er fóðraður að innan með eldföstum steini. Halli ofnsins er 2,75%. Afköstin eru um 325 tonn á sólarhring. Hitastig í efri enda ofnsins (inntaki) er 180°C og 1450°C í brennsluhólfi hans. Rykhreinsun á útblásturslofti ofnsins fer fram í öflugri rafsíu.
![]() |
![]() |






