Hráefni


Venjulega er Portlandsement framleitt úr kalksteini og leir. Ísland er eldfjallaland og því að mestu leyti byggt upp af basalti. Nægjanlegt magn af kalksteini og leir er því ekki fyrir hendi í landinu. Þess vegna eru notuð önnur efni. Þau eru skeljasandur af botni Faxaflóa og líparít, sem unnið er úr námu í botni Hvalfjarðar.

Skeljasandinum er dælt upp af um 30 metra dýpi. Hann er kalkgjafinn í sementsvinnslunni og er kalsíumkarbónatinnihald hans rúmlega 90%. Skeljasandslögin liggja á allstóru svæði 8-10 mílur suðvestur frá Akranesi. Árleg notkun er um 130.000 m3 eða um 100.000 tonn þegar framleitt er á fullum afköstum. Líparítið er kísilsýrurík bergtegund, sem myndar annan aðalefnisþátt sementsins. Það er unnið úr námu í Hvalfjarðarbotni og flutt með bifreiðum til verksmiðjunnar. Árleg notkun til gjallframleiðslu er um 20.000 tonn þegar unnið er á fullum afköstum. Þriðja hráefnið er basaltsandur, sem tekinn er úr sandfjöru við bæinn Hvítanes skammt innan við Akranes.

Hafa samband 

  • Sími sementsafgreiðsla430 5050
  • Fax sementsafgreiðsla430 5051
  • Sími skrifstofa430 5000
  • Fax skrifstofa430 5001
  • Fax lager430 5071
Kort af verksmiðju

Opnunartími sementsafgreiðslunnar

Mán – Fimm 7.45 – 16.00
Föstud. 7.45 – 15.00

Sé um afgreiðslu utan opnunartíma að ræða leggst á viðbótarkostnaður