Sementsframleiðsla
Sementsgjallið er malað í tveim sementskvörnum (Unidangerð). Önnur þeirra er þriggja hólfa gegnumstreymiskvörn með afkastagetu 20 tonn á klukkustund, hin er hringrásarkvörn, tveggja hólfa með skiljubúnaði af Sepaxgerð. Afkastageta hennar er 30 tonn á klukkustund.
Þrjár tegundir af sementi eru framleiddar: Kraftsement, Portlandsement og Hraðsement. Framleiðslan er í samræmi við Evrópustaðal ENV 197. Í sementið er blandað 5 - 6% af gipsi og 4-6% af járnblendiryki. Járnblendiryki er blandað í sementið til þess að varna hættulegum alkalíþenslum í steypu, en einnig til þess að bæta aðra eiginleika sementsins.
Til þess að koma í veg fyrir hættu á húðsjúkdómum af völdum sexgilds krómats, sem er í öllu sementi í mismunandi magni, er allt íslenskt sement blandað járnsúlfati, sem eyðir krómatinu.
Til hreinsunar á útblæstri sementskvarna eru rafsíur.
![]() |
![]() |
![]() |







