28.10.2022
Framúrskarandi fyrirtæki 2022
Sementsverksmiðjan er Framúrskarandi fyrirtæki árið 2022 samkvæmt lista Creditinfo og er því í hópi 875 íslenskra fyrirtækja sem ná inn á listann, eða um 2% allra fyrirtækja landsins. „Það er virkilega ánægjulegt að vera meðal framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi og hvetur viðurkenningin okkur enn frekar til dáða. Þessi nafnbót er viðurkenning á því ötula starfi sem starfsfólk okkar vinnur og góðu samstarfi við viðskiptavini Sementsverksmiðjunnar, segir Gunnar H. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sementsverksmiðjunnar.

Af þessu tilefni bauð Creditinfo til hátíðlegs viðburðar í Hörpu og komu fulltrúar frá Framúrskarandi fyrirtækjum landsins saman til að fagna og taka á móti viðurkenningum. Sérstaka viðurkenningu hlutu Reitir fasteignafélag fyrir framúrskarandi samfélagsábyrgð og Origo fyrir framúrskarandi nýsköpun.
Framúrskarandi fyrirtæki er samantekt Creditinfo á þeim íslensku fyrirtækjum sem byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag allra. Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtækin að uppfylla ströng skilyrði sem eru listuð hér að neðan.
- Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3
- Ársreikningi skal skilað á réttum tíma lögum samkvæmt
- Hefur skilað ársreikningi til RSK síðustu þrjú ár
- Fyrirtækið er virkt samkvæmt skilgreiningu Creditinfo
- Rekstrartekjur að lágmarki 50 milljónir króna síðustu þrjú ár
- Fyrirtæki með rekstrartekjur yfir 10 milljarða þurfa að fylla út spurningalista um sjálfbærni
- Framkvæmdarstjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK
- Rekstrarhagnaður (EBIT) jákvæður síðustu þrjú ár
- Ársniðurstaða jákvæð síðustu þrjú ár
- Eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% síðustu þrjú ár
- Eignir að minnsta kosti 100 milljónir króna síðustu þrjú ár
- Lesa má nánar um Framúrskarandi fyrirtæki á vefsíðu Creditinfo.