Sement
Umhverfismál
Um okkur

07.01.2021

Fréttatilkynning | Hörmum óþægindi

Sementsverksmiðjan harmar óhapp á Akranesi

Sementsverksmiðjan harmar óþægindi sem nágrannar fyrirtækisins urðu fyrir í gær þegar sementsryk þyrlaðist upp frá sílói og lagðist yfir nágrenni verksmiðjunnar.

Mannleg mistök urðu til þess að sementssíló við Sementsverksmiðjuna á Akranesi yfirfylltist við uppskipun aðfaranótt 5. janúar svo sementsryk þyrlaðist upp og settist á götur, hús og bíla í nágrenni verksmiðjunnar.

Sement sem fyrirtækið flytur inn er náttúrulegt efni án eiturefna. Rykið sem barst út í umhverfi verksmiðjunnar ógnaði ekki heilsu fólks en getur ef ekkert er að gert valdið skemmdum á munum og byggingum.

Starfsfólk Sementsverksmiðjunnar hefur frá því í gær unnið í samvinnu við íbúa, Slökkviliðið, Veitur og aðra aðila að því að hreinsa fljótt og vel upp vettvang og eignir fólks til að varna skemmdum og forða frekari óþægindum. Sú vinna gekk vel og fyrirtækið vill koma á framfæri þökkum til allra sem að komu fyrir ötult starf og skjót viðbrögð.

Sementsverksmiðjan er mikilvægur hlekkur í uppbyggingu um allt land og leggur mikla áherslu á að starfa í góðri sátt við umhverfi sitt og samfélag, nær og fjær. Fyrirtækið starfar samkvæmt alþjóðlega viðurkenndum öryggis- og gæðastöðlum og var atvikið í gær óhapp sem ekki samræmist stefnu og vilja fyrirtækisins eða eigenda þess. Fyrirtækið biður því alla þá sem fyrir óþægindum urðu velvirðingar og mun gera það sem í valdi þess stendur til að tryggja að óhapp af þessu tagi endurtaki sig ekki.

Dagsetning
07.01.2021
Deila